Til skoðunar að hefja gjaldtöku á bílastæðum í miðbænum

Til skoðunar að hefja gjaldtöku á bílastæðum í miðbænum

Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa rætt breytingar á bílastæðamálum í miðbæ Akureyrar og taka jákvætt í þá hugmynd að byrja á ný að rukka þá sem leggja bílum sínum í miðbænum. Þetta kemur fram í Vikudegi.

Bílastæðaklukkur hafa verið notaðar í stað gjaldtöku í miðbæ Akureyrar í tæp 15 ár en skipulagsráð hefur rætt nýja möguleika.

Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsráðs í vikunni og lagt fram til umræðu minnisblað bifreiðastæðasjóðs um gjaldtöku í miðbæ Akureyrar. Skipulagsráð bæjarins hefur falið sviðsstjóra skipulagssviðs að vinna áfram að málinu og gera tillögu um hvernig innleiða skuli nýtt skipulag.

 Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri skipulagssviðs Akureyrarbæjar, segir í samtali við Vikudag að verið sé að meta kosti og galla gjaldskyldu en málið hafi verið í skoðun frá því í haust. Hann segir að nokkrar ástæður liggi að baki því að bærinn íhugi að breyta úr klukkustæðum yfir í gjaldskyldu. 

„Erlendir ferðamenn koma t.d. meira til bæjarins nú en áður og við höfum heyrt að þeir skilji misjafnlega vel þetta klukkukerfi sem við höfum. Einnig hefur markmiðið með að dreifa bílastæðunum ekki tekist þar sem menn fara bara út og breyta klukkunni. Fleiri ástæður koma til og núna er í rauninni verið að endurskoða þá ákvörðun sem tekin var á sínum tíma að hafa klukkukerfi en ekki gjalskyldu. En það liggur engin ákvörðun fyrir ennþá,“ segir Pétur Ingi.  

UMMÆLI