Tóbías sló 10 ára gamalt Íslandsmet

Tóbías sló 10 ára gamalt Íslandsmet

Tobías Þórarinn Matharel (UFA) sló 10 ára gamalt Íslandsmet í þrístökki í flokki 14 ára pilta á Áramóti UFA í lok ársins 2023. Tobías stökk 13,22 m og stórbætti þar með fyrra met sem var 12,66 m. Það met átti Styrmir Dan Hansen Steinunnarson og var það frá árinu 2013. Með þessu stökki kemst Tóbías inn í úrvalshóp FRÍ í þrístökki, væntanlega sá fyrsti sem kemst í úrvalshópinn í þrístökki í 10 ár. Þetta kemur fram á vef UFA.

„Tobías er fjölhæfur íþróttamaður, hann varð íslandsmeistari í níu greinum á árinu 2023 og bætti íslandsmetið í flokki 14 ára pilta í þrístökki utanhúss í sumar, stökk þar 12,67 m. Innanhúss varð hann íslandsmeistari í 60 m grindahlaupi, langstökki og þrístökki. Utanhúss varð hann íslandsmeistari í 80m grindahlaupi, 300m grindahlaupi, hástökki, langstökki, þrístökki og spjótkasti,“ segir í tilkynningu UFA

Vídeó af stökkinu má finna hér

UMMÆLI

Sambíó