Transavia hefur hafið sölu á flugsætum til Akureyrar frá Hollandi

Transavia hefur hafið sölu á flugsætum til Akureyrar frá Hollandi

Hollenska flugfélagið Transavia mun fljúga til Akureyrar frá hollensku borginni Rotterdam í sumar og næsta vetur. Nú hefur flugfélagið hafið beina sölu á flugsætum í þessar ferðir.

Þetta er í fyrsta sinn sem hollenskt flugfélag selur sjálft sæti í ferðir til Akureyrar. Flugið er tilkomið vegna ferða á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel sem býður upp á skipulögð ferðalög um Ísland frá Akureyri.

Transavia selur hins vegar aðeins sætin, óháð ferðaskrifstofunni, og má því segja að þetta sé í fyrsta sinn sem áætlunarflug sé í boði á milli Akureyrar og Hollands.

Í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands segir að það sé ljóst að þetta skapi gríðarleg tækifæri fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi, en einnig fyrir aðrar atvinnugreinar.

„Norðlendingar hafa nú enn fleiri tækifæri til að kaupa stök flugsæti til Rotterdam, en þessu til viðbótar selur Ferðaskrifstofa Akureyrar stök sæti, sem og pakkaferðir, til Rotterdam. Vert er að minnast á að frá Rotterdam er svo hægt að fljúga áfram til annnarra áfangastaða, en þeir skipta tugum.

Markaðsstofa Norðurlands fagnar þessum stóra áfanga, sem er árangur af áralöngu starfi Flugklasans AIR 66N sem Markaðsstofan heldur utan um. Það er mjög ánægjulegt að geta tilkynnt um aukna umferð um Akureyrarflugvöll og meiri sýnileika áfangastaðarins Norðurlands og auka þannig framboð á flugsætum til Íslands.“

Mynd: NorthIceland.is

Sambíó

UMMÆLI