Trilludagar komnir til að vera

Trilludagar voru haldnir á Siglufirði í annað sinn um nýliðna helgi og þóttu þeir takast einstaklega vel en talið er að um 1500 manns hafi verið í bænum á Trilludögum.

Trilludagar voru skipulagður í samvinnu við átta trillukarla og var gestum hátíðarinnar boðið í siglingu um fjörðinn þar sem rennt var fyrir fisk. Þegar í land var komið var svo í boði að grilla aflann. Heitt grænmeti var borið fram með fisknum í boði Kjörbúðarinnar á Siglufirði. Um 4-500 manns nýttu sér þetta tækifæri.

Milli klukkan 16:00 og 18:00 var svo öllum boðið til grillveislu. Fleira var í boði á Trilludögum en þar má meðal annars nefna að Ingi Vignir Gunnlaugsson sýndi landnámshænur úr einkaræktun. Hannes Boy bauð upp á síldar- og sjávarréttarhlaðborð. Söngvaborg og Leikhópurinn Lotta skemmtu yngri kynslóðinni. Síldargengið fór rúnt um miðbæinn og var með síldarsöltun við Síldarminjasafnið, bryggjuball og harmonikkuleik. Börnum var boðið að fara á hestbak og tónlistarmenn úr heimabyggð komu fram á sviði en það voru Tryggvi og Júlíus Þorvaldssynir, Þórarinn Hannesson, Sturlaugur Kristjánsson og Daníel Pétur Daníelsson.

„Ljóst er að Fjölskylduhátíðin Trilludagar er komin til að vera enda mikil ánægja með daginn,“ segir í tilkynningu á vef Fjallabyggðar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó