Tvær opnanir á Laugardaginn

Tvær opnanir á Laugardaginn

Laugardaginn 4. maí kl. 15 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri: Nemendasýning Myndlistaskólans á Akureyri, Listfengi, og útskriftarsýning nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA, 13+1.

Það dylst engum sem skoðar verk þeirra myndlistarmanna og hönnuða sem brautskráðir eru að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum Myndlistaskólans á Akureyri að þar eru á ferð sterkir einstaklingar sem taka fag sitt alvarlega og hagnýta sér til fulls þá reynslu sem þeir hafa öðlast.

Sjálfsskoðun er mikilvæg og gerir þá kröfu til nemandans að hann nái að yfirstíga nánd sína og birta viðfangsefni sitt á þann hátt að veki áhuga áhorfandans. Það getur verið snúið, en styrkleiki nemandans felst í hnitmiðaðri, myndrænni framsetningu verkanna og kunnáttu til að miðla henni á sem sterkastan hátt til áhorfandans. Myndræn framsetning verkanna er hluti af hugmyndinni og gegnir lykilhlutverki í að miðla áhrifunum til áhorfandans.

Nemendur:

Aðalborg Birta Sigurðardóttir
Anna María Hjálmarsdóttir
Fannar Már Skarphéðinsson
Fanný María Brynjarsdóttir
Ingibjörg Rún Jóhannesdóttir
Jón Páll Norðfjörð
Kári Hrafn Svavarsson
Sara Sif Kristinsdóttir
Sigrún Gunnarsdóttir

13+1

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er fimmta árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst.

Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með. Nemendur fá eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.

Nemendur: 

Bjarki Höjgaard
Brynja Rún Guðmundsdóttir
Elísa Embla Viðarsdóttir
Gerður Björk Sigurðardóttir
Hrafnhildur M Ríkharðsdóttir
Rakel Arnþórsdóttir
Brynja Ploy Garðarsdóttir
Diljá Dögg Trampe
Ragnheiður Diljá Káradóttir
Sara Rut Jóhannsdóttir
Sesselja Sól Sigurðardóttir
Sigríður Dagný Þrastardóttir
Svana Rún Aðalbjörnsdóttir
Tinna Björk Sigþórsdóttir

Fréttatilkynning af vef Listasafnsins á Akureyri

UMMÆLI

Sambíó