![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/05/a.aegir_-650x433.jpg)
Ægir Steinarsson
Fúsíjama TV, íslenskur vefmiðill sem fjallar um körfubolta, greindi frá því í gær að orðið á götunni innan körfuboltahreyfingarinnar væri það að Þórsarar væru stórhuga fyrir næsta vetur. Síðan greinir frá orðrómi þess efnis að Þórsarar séu í viðræðum við landsliðsmennina Ægi Þór Steinarsson og Brynjar Þór Björnsson um að þeir leiki með félaginu á næstu leiktíð.
Ægir og Brynjar eru báðir landsliðsmenn en Ægir lék á síðasta tímabili á Spáni við góðan orðstír. Brynjar er einn sigursælasti leikmaður í sögu íslensks körfubolta en hann vann í vor sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil.
Fúsíjama TV greinir einnig frá því að Tryggvi Hlinason taki mögulega annað tímabil með félaginu.
![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/05/a.bryll_.jpg)
Brynjar Þór Björnsson
UMMÆLI