Prenthaus

Um 100 bleikar slaufur prýða miðbæ Akureyrar í október

Dömulegir dekurdagar fara fram á Akureyri 5.-8. október en viðburðurinn var fyrst haldinn í október hið merka ár 2008 og hefur aldeilis vaxið og dafnað frá þeim tíma en hann er nú orðinn einn helsti styrktaraðili Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Hátt í 100 aðilar voru með á síðasta ári og var afrakstur af þátttökugjöldum, klútasölu, slaufum í staura og einstökum framlögum í tengslum við Dömulegu dagana um 3 milljónir króna en framlagið er notað til að greiða leigu fyrir krabbameinssjúklinga sem þurfa að sækja þjónustu í veikindum til Reykjavíkur. Einnig eru seldir klútar sem eru sérmerktir Dömulegum dekurdögum.  Nýtt mynstur er gert ár hvert og vaskur hópur kvenna handþrykkir á klútana. Þeir eru gjöf til verkefnisins þannig að upphæðin sem kaupendur greiða rennur öll til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Í október prýða stórar bleikar slaufur ljósastaura í miðbæ Akureyrar og er það undirbúningsnefndin sem á heiðurinn að því að handbinda um slaufur um allan bæ og er markmiðið tvíþætt; að lífga upp á bæinn og að minna konur á að fara í Krabbameinsskoðun.  Fyrirtæki og einstaklingar eru hvattir til að taka slaufu í fóstur, setja sig í samband við Dömulega dekurdaga og nefndin mætir á svæðið til að hengja upp.

Þess utan er tilgangur Dömulegra dekurdaga er glæða bæinn lífi, fá vinkonuhópa, systur, mæðgur, dætur og vinnufélaga á Akureyri til að koma í bæinn og hópa til að koma norður.

Sem fyrr segir hefur viðburðurinn vaxið mikið frá árinu 2008 og sífellt fleiri fyrirtæki taka þátt en þetta er einmitt kjörið tækifæri til að kynna vörur og fjölbreytta þjónustu á skemmtilegan hátt. Verslanir á Glerártorgi eru opnar fram á kvöld á fimmtudag og ýmsar uppákomur í gangi. Verslanir í miðbænum eru flestar opnar fram eftir kvöldi á föstudag og í ár verða valdir veitingastaðir með gestakokka á vegum Food & fun þessa sömu daga. Verslanir og veitingahús eru hvött til að taka þátt og gera Dömulegu dagana eftirminnilega fyrir þá sem koma til að njóta.

Lokakvöld Dömulegra Dekurdaga verður  fimmtudagskvöldið 2. nóvember á Icelandanir hótelinu á Akureyri.  Þar verður tónlist, áhugaverðir fyrirlestrar og reynslusögur kvenna og fulltrúum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis verður afhentur afrakstur fjáröflunar í bleikum október.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó