Umsóknir um námsvist við Háskólann á Akureyri á pari við árið áður

Umsóknir um námsvist við Háskólann á Akureyri á pari við árið áður

Umsóknarfrestur um nám við Háskólann á Akureyri rann út 5. júní en sökum Hvítasunnuhelgarinnar var umsóknargáttin þó opin út 7. júní. Samtals bárust 1.716 umsóknir sem er 49 færri en í fyrra.

Á vef Háskólans á Akureyri segir að flestar umsóknir hafi borist um nám í hjúkrunarfræði, 214, og 209 umsóknir í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn. Báðar þessar námsleiðir eru fjöldatakmarkaðar og að loknum samkeppnisprófum er aðeins hluti nemenda sem kemst í áframhaldandi nám.

„Við áttum alveg eins von á mun færri umsóknum í ár enda er atvinnulífið að fara á fullt aftur eftir COVID-19. Að umsækjendur hafi áhuga á sveigjanlegu námsfyrirkomulagi er hinsvegar augljóst og engan bilbug að finna á því. Það sem við ættum þó sem samfélag að hafa áhyggjur af er mikill áhugi fólks á námsleiðum þar sem mikil þörf er á fjölgun í starfsstéttunum en takmörkuð pláss gefa okkur ekki svigrúm til að mennta alla til þessara stétta,“ segir Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri.

Stefnt er að því að umsækjendur fái svar um námsvist eigi síðar en 24. júní. Móttaka nýnema verður vikuna 22. – 26. ágúst. Sjá nánar hér.

Nú stunda 1.884 stúdentar nám við Háskólann á Akureyri og er hann þriðji stærsti háskóli landsins á eftir Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.


UMMÆLI

Sambíó