Origo Akureyri

Umtalsverð hækkun til menningarmála í endurnýjuðum samstarfssamningiFrá undirritunarathöfninnni. Ljósmynd: Daníel Starrason.

Umtalsverð hækkun til menningarmála í endurnýjuðum samstarfssamningi

Samstarfssamningur milli ríkisins og Akureyrarbæjar um menningarmál hefur verið framlengdur út árið 2024. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri skrifuðu undir framlenginguna í gær. Endurnýjaður samningur felur í sér hækkun á framlögum bæði ríkis og bæjar um 20 miljón krónur frá hvorum aðila. Þetta kemur fram í frétt frá Akureyrarbæ. Þar segir einnig:

Meginmarkmið samtarfsins er að efla atvinnustarfsemi í listum á Akureyri og Norðurlandi og byggir samningurinn á fjórum meginverkefnum: Starfsemi Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Menningarhússins Hofs sem Menningarfélag Akureyrar hefur með höndum og loks starfsemi Listasafnsins á Akureyri sem rekið er af Akureyrarbæ.

Ráðherra segir af þessu tilefni að ríkt menningarlíf sé mikilvægur hluti af innviðum hvers samfélags og að hún hyggist skipa starfshóp um framtíðarþróun samstarfs bæjarins og ríkisins í menningarmálum. Ráðherra segir mikilvægt að nýta tækifærið og tengja þessa atvinnustarfsemi betur við opinbera stefnumótun í viðkomandi málaflokkum. Bæjarstjóri tekur undir orð ráðherra og bætir við: „Það er ljóst að Akureyrarbær gæti ekki staðið jafn myndarlega við bakið á þeirri starfsemi sem hér um ræðir ef ekki væri fyrir stuðning ríkisins. Ég tel mikilvægt að tengja þróun samstarfsins við hugmyndir um Akureyri sem svæðisborg og ég tel að það muni gefa okkur, sem þjóð, tilefni til að efla það enn frekar.“

Sambíó

UMMÆLI