Unnu til verðlauna í teiknisamkeppni breska sendiráðsinsMyndir krakkanna úr Giljaskóla. Mynd: Akureyri.is

Unnu til verðlauna í teiknisamkeppni breska sendiráðsins

Þrír nemendur í Giljaskóla unnu til verðlauna í teiknisamkeppni sem sendiráð Bretlands á Íslandi hélt nýverið í tengslum við útgáfu bókarinnar „Tæknitröll og íseldfjöll“ eftir breska sendiherrann Dr. Bryony Mathew. Verðlaunahafarnir eru Aleksandra Staniszewska, Nökkvi Freyr Hjálmarsson og Vigdís Anna Sigurðardóttir öll í 7. bekk. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Í síðustu viku kom sendiherrann ásamt tveimur starfsmönnum sendiráðsins í heimsókn í Giljaskóla og hitti nemendur 4. bekkjar til að ræða við þá um spennandi störf framtíðar. Krakkarnir sýndu lifandi áhuga á því sem um var rætt og tóku virkan þátt í samtalinu við þessa góðu gesti.

Bryony er doktor í taugavísindum og einnig barnabókahöfundur. Nýlega gaf sendiráðið út bók hennar um störf framtíðarinnar á íslensku, bókin verður ekki til sölu heldur mun breska sendiráðið gefa prentuð eintök þeim bókasöfnum og skólum sem þess óska.

Í bókinni er fjallað um möguleikana í framtíðinni, fjölbreytileika, að allir glíma við áskoranir og að við lærum á ólíkan hátt. Verkefnið hefur fengið góðan stuðning innanlands frá ráðherrum, meðal annars mennta- og menningarmála, og forsetafrúnni Elizu Reid.

Hérna er hægt að lesa um bókina og skoða rafræna útgáfu hennar.

Hérna má lesa um Dr. Bryony.

UMMÆLI