Upplýsingamiðstöðin opnuð í Menningarhúsinu Hofi

Upplýsingamiðstöðin opnuð í Menningarhúsinu Hofi

Upplýsingamiðstöð ferðamanna var opnuð í Hofi mánudaginn 1. apríl. Opið verður alla daga frá kl. 10-15 en afgreiðslutíminn lengist í 8-16 yfir hásumarið (frá 1. júní til 31. ágúst).

Í upplýsingamiðstöðinni er fyrst og fremst lögð áhersla á að miðla upplýsingum til ferðamanna um Akureyri og næsta nágrenni en ferðaþjónustuaðilar um allt Norðurlandi eru hvattir til að koma með kynningarefni sitt í Hof svo sé hægt að segja frá öðrum helstu dásemdum landshlutans.

Það er vel við hæfi að opna upplýsingamiðstöðina núna þegar líður að vori og komu skemmtiferðaskipa til bæjarins. Von er á fyrsta skipi ársins til Akureyrar þann 14. apríl en þá kemur AIDAsol með um 2.194 farþega og 646 manna áhöfn.

Skipakomur til Eyjafjarðar verða um 258 í sumar með viðkomu á Akureyri, í Hrísey og Grímsey, sem er um 2% eða 5 færri skipakomur en voru í fyrra. Einblínt hefur verið á að bæta þjónustu og tímasetningar skipa fremur en að fá fleiri skip í höfn, samkvæmt Jóhönnu Tryggvadóttur, verkefna- og markaðsstjóra hjá Akureyrarhöfn.

Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar. Þetta er sami hópur og staðið hefur að opnun hennar síðustu tvö sumur, en því miður varð að loka upplýsingamiðstöðinni fyrir fjórum árum þegar ríkið hætti að styðja reksturinn með fjárframlagi sínu.

Frétt og mynd: Akureyri.is

Sambíó

UMMÆLI