Uppsögn leikhússtjóra tengist #metoo

Jón Páll Eyjólfsson

Fyrr í dag var Jóni Páli Eyjólfssyni leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar sagt fyrirvaralaust upp störfum. Jón Páll hafði áður tilkynnt það að hann hyggðist segja upp störfum en myndi vinna út leikhúsárið. Í samtali við mbl.is staðfestir Jón Páll að uppsögnin tengist #metoo byltingunni.

Jón Páll segir að uppsögnin tengist máli sem kom upp fyrir um áratug og var ekki innan leikhússins. Unnið hafi verið að sátt í málinu að frumkvæði þolandans fyrir fimm árium og stefnt hafi verið að henni þegar #metoo byltingin fór í gang. Jón Páll segist hafa gert framkvæmdastjóra Menningarfélags Akureyrar grein fyrir stöðunni strax.

Þuríður Helga Kristjáns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Menn­ing­ar­fé­lags Ak­ur­eyr­ar, seg­ist ekki neita því að upp­sögn Jóns Páls teng­ist #met­oo-bylt­ing­unni.

Sjá einnig:

Leikhússtjóri lýkur störfum

 

UMMÆLI