Prenthaus

Vefsvæði með öllum helstu upplýsingum um íbúakosningu um skipulag OddeyrarMynd: Akureyri.is

Vefsvæði með öllum helstu upplýsingum um íbúakosningu um skipulag Oddeyrar

Á vef Akureyrarbæjar hefur verið opnað sérstakt vefsvæði þar sem er að finna allar helstu upplýsingar um ráðgefandi íbúakosningu um breytingu á aðalskipulagi Oddeyrar. Kosningin verður haldin 27. til 31. maí næstkomandi.

„Markmiðið er að kanna viðhorf og vilja fólks gagnvart uppbyggingu á svæðinu og því er mikilvægt að sem flestir taki þátt. Íbúar eru hvattir til að kynna sér málið vel og kjósa í samræmi við bestu sannfæringu. Á vefsvæðinu er hægt að kynna sér kostina sem valið er á milli, skoða myndir sem sýna mögulegt byggingarmagn miðað við mismunandi útfærslur, lesa um ferli málsins frá því fyrstu hugmyndir voru kynntar og skoða svör við algengum spurningum,“ segir á vef bæjarins.

Smelltu hér til að skoða vefsvæðið.

Íbúar sveitarfélagsins, 18 ára og eldri, geta kosið í gegnum þjónustugáttina sem er aðgengileg á heimasíðu Akureyrarbæjar. Til að komast þar inn þarf Íslykil eða rafræn skilríki. Nánari leiðbeiningar verða birtar áður en kosning hefst.

UMMÆLI