Vilborg Davíðsdóttir með fyrirlestra á Akureyri og Dalvík um sorg

Vilborg Davíðsdóttir

Á morgun, fimmtudaginn 9.mars, mun Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur og þjóðfræðingur, flytja fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð á Dalvík og Akureyri. Sá fyrri verður í Dalvíkurkirkju kl. 17 og seinni sama dag kl. 20 í safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Fyrirlestrarnir eru á vegum Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð.

Á 999 daga tímabili kvaddi Vilborg eiginmann sinn, tengdamóður, föður og litla dótturdóttur. Bók hennar um þessa reynslu, Ástin, drekinn og dauðinn, hefur vakið mikla athygli og hlotið lof fyrir að fjalla um ástvinamissi og sorg á áhrifamikinn hátt. Þar lýsir hún vegferð sinni og manns hennar sem eftir að hann greindist með krabbamein í heila sem þau vissu að myndi draga hann til dauða. Hún lýsir einnig fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja en þá greindist faðir hennar einnig
með krabbamein. Í erindi sínu mun Vilborg fjalla um hvernig lífsógnandi sjúkdómur breytir tilveru allra sem í kring standa, um mikilvægi þess að meðtaka dauðann sem hluta af lífinu og þær gjafir sem sorgin færir okkur. Bók hennar veitir í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst en hún er ekki síður óður til kærleikans, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífsævintýrinu.

Aðgangur á fyrirlestrana er ókeypis og öllum opinn.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó