Viljayfirlýsing um samstarf Akureyrarbæjar og Bjargs íbúðarfélags

Mynd af Akureyri.is

Viljayfirlýsing um samstarf Akureyrarbæjar og Bjargs íbúðarfélags var undirrituð í dag. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar. Viljayfirlýsingin felur í sér að bærinn veiti 12% stofnframlag til byggingar 75 nýrra íbúða á vegum félagsins á Akureyri á næstu þremur árum. Þetta er gert í ljósi þeirra brýnu verkefna sem blasa við í húsnæðismálum og hefur Akureyrarbær nú þegar gefið vilyrði um úthlutun á lóð að Guðmannshaga 2 í Hagahverfi fyrir a.m.k. 18 íbúðir og fram til ársins 2020 verður úthlutað lóðum fyrir samtals 75 leiguíbúðir.

„Við uppbyggingu skal horfa til atriða eins og félagslegrar blöndunar, yfirbragðs, íbúalýðræðis og hönnunar og skal það útfært nánar í samvinnu aðila. Akureyrarkaupstaður gerir það að skilyrði fyrir veitingu stofnframlags til verkefnisins að fjölskyldusvið Akureyrarbæjar hafi að jafnaði ráðstöfunarrétt að 20% íbúða, samkvæmt sérstöku samkomulagi sem aðilar gera um hvert verkefni,“ segir í tilkynningu á akureyri.is

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að þetta framtak íbúðafélagsins Bjargs á Akureyri sé góð viðbót við húsnæðismarkaðinn í bænum og að Akureyrarbær komi beint að þessu góða máli í því skyni að bæta aðgengi tekjulægri hópa að öruggu leiguhúsnæði.

„Framundan er krefjandi verkefni sem Bjarg mun leysa af metnaði og í samvinnu við heimamenn,“ segir Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs og fagnar samstarfinu við Akureyrarbæ.

Samkomulagið undirrituðu Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Elín Björg Jónsdóttir stjórnarmaður í Bjargi og formaður BSRB, og Gylfi Arnbjörnsson stjórnarformaður Bjargs og forseti ASÍ.

Sambíó

UMMÆLI