Prenthaus

Vinnur KA/Þór alla heimaleiki sína?

Martha hefur verið virkilega öflug í vetur.

KA/Þór getur stigið stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum í 1.deild kvenna í handbolta í dag þegar liðið fær HK í heimsókn í KA heimilið klukkan 16.

KA/Þór trónir á toppi deildarinnar með tveggja stiga forskot á næsta lið sem er Fjölnir en þau lið mætast einmitt syðra í lokaumferð deildarinnar. Fari svo að KA/Þór vinni HK og Fjölnir tapi stigum gegn Víking R. á sama tíma er KA/Þór búið að tryggja sér efsta sætið.

Stelpurnar hafa verið algjörlega óstöðvandi á heimavelli í vetur og unnið alla heimaleiki sína til þessa.

Það verður mikið um dýrðir í KA heimilinu þar sem frítt er á leikinn og  pylsur og gos í boði á meðan að birgðir endast.

UMMÆLI

Sambíó