Vinnustofusýning Haralds í Deiglunni

Vinnustofusýning Haralds í Deiglunni

Þann 9. apríl næstkomandi klukkan 14.00 opnar Haraldur Ingi Haraldsson sýningu á nýjum verkum í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri. Verkin eru flest unnin á plastdúk með akrílitum og klipptækni. 

Á meðan á sýningunni stendur kemur út 1 stutt myndband á dag þar sem Haraldur segir frá verkunum á sýningunni og spilar á heimasmíðaða 3 strengja CB gítara.  Þau er birt á Facebook síðunn DEIGLAN 22 SÝNING.

Sýningin er opin eins og vinnustofa.  Það er á meðan að listamaðurinn er á staðnum.  Um helgar frá sirka 10 til 21 og á vinnudögunum frá 16 til 21.  Í vídeóunum er alltaf sagt frá opnunartíma sama dag og þau koma út og daginn eftir.

Haraldur Ingi hefur haldið hátt á 4 tug einkasýninga.  Hann er menntaður í myndlist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og frá AKI Akadeimie voor Beeldende Kunst í Enchede, Hollandi og frá De Frie Acadeimie Pshykopolis í Den Haag, Hollandi. Hann hefur starfað innan myndlistarfagsins stóran hluta starfsferils síns.  Hann var fyrsti forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri og starfar nú sem verkefnastjóri við safnið.

UMMÆLI