Virkt smit staðfest á Akureyri

Virkt smit staðfest á Akureyri

Eitt virkt Covid-19 smit er nú staðfest á Akureyri og þó nokkrir aðilar því tengdu komnir í sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra í dag.

Lögreglan hvetur alla til þess að gæta vel að persónulegum sóttvörnum og virða þær leikreglur sem í gildi eru, s.s. grímuskylduna þar sem hún á við, 2ja metra fjarlægðina og fjöldatakmarkanir.

„Þá viljum við árétta við fólk að ef það finni til einhverra einkenna eða veikinda að skrá sig í sýnatöku á Heilsuveru.Áfram gakk, GERUM ÞETTA SAMAN,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

10 einstaklingar eru í sóttkví á Norðurlandi eystra samkvæmt töflu lögreglunnar. Fjórir á Akureyri, fjórir í Mývatnssveit, einn á Dalvík og einn í Hörgársveit.

UMMÆLI

Sambíó