Prenthaus

Vítahringur vantrausts

Vítahringur vantrausts

Einar Brynjólfsson skrifar

Skoðanakannanir hafa sýnt mörg undanfarin ár að almenningur ber mjög lítið traust til stjórnvalda og ýmissa stofnana, sérstaklega til Alþingis og ráðherra. Fyrir því eru einfaldar ástæður, en reyndar ansi margar. Þingmönnum og ráðherrum hefur nefnilega ítrekað tekist að klúðra málum, t.d. varðandi skipan dómara við Landsrétt, með því að halda skýrslum og upplýsingum frá almenningi, með því að fara ekki eftir eigin sóttvarnarreglum og svo mætti lengi telja.

En hvar liggur vandinn?

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur oft látið rannsaka traust og vantraust á stjórnvöldum og stjórnkerfum aðildarlandanna. Í einni slíkri, Trust and Public Policy frá 2017, kemur fram að traust (eða vantraust) almennings snýr annars vegar að hæfni stjórnvalda til að sinna skyldum sínum. Hins vegar snýr það að því hvort stjórnvöld fari eftir þeim leikreglum og viðmiðum sem þau sjálf hafa sett.

Í þessari rannsókn kemur skýrt fram að almenningur gerir kröfu um

1. að stjórnvöld sætti sig við skýrar leikreglur og;

2. að það endurspeglist þegar stórar og afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar;

3. að pólitískir leiðtogar sýni gott fordæmi, t.d. með því að stuðla að góðu aðgengi að upplýsingum og gagnsæi;

4. að sömu viðmið og leikreglur gildi í öllum kimum stjórnkerfisins, jafnt hjá embættisfólki og kjörnum fulltrúum.

Þessir meginþættir falla vel að grunngildum Pírata, enda segir í grunnstefnu okkar m.a. að gagnsæi snúist um að opna hina valdameiri gagnvart eftirliti hinna valdaminni, að almenningur þurfi að vera upplýstur fyrir lýðræðislega ákvarðanatöku og að upplýsingar eigi að vera aðgengilegar almenningi.

Atvikin sem ég nefndi hér að ofan eru góð dæmi (eða vond) um það hvernig íslensk stjórnvöld reyna ítrekað að sveigja framhjá þessum meginþáttum sem almenningur gerir kröfu um. Píratar vilja rjúfa þennan vítahring vantrausts, með betra aðgengi að upplýsingum að vopni og síðast en ekki síst, auðmýkt gagnvart valdinu sem þeim er fært í hendur.

Höfundur er oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi við Alþingiskosningarnar 25. september nk.


Kaffið.is fylgist með Alþingiskosningunum í haust með áherslu á Norðausturkjördæmi. Hér má finna fleira greinar og annað gagnlegt efni tengt kosningunum.

Vilt þú birta grein á Kaffið.is? Sendu á okkur með því að smella hér

Sambíó

UMMÆLI