VMA í samstarf með hársnyrtistofum á Akureyri

Mynd: vma.is

Vinnustaðanám er nýjung í hársnyrtiiðn við Verkmenntaskólann á Akureyri í vetur. Hver nemandi á þriðju önn náms í hársnyrtiiðn fer einu sinni í viku, samtals í tíu skipti, á ákveðna hársnyrtistofu, fjórar klukkustundir í senn,  og er markmiðið að nemendur kynnist faginu frá öllum hliðum og kynnist vinnubrögðum við raunverulegar starfsaðstæður. Slíkt vinnustaðanám er einnig áætlað á fjórðu og fimmtu önn námsins.

Harpa Birgisdóttir kennari í hársnyrtigreinum segir ánægjulegt að finna hversu vel meistarar á hársnyrtistofunum hafi tekið í þessa nýbreytni í náminu enda segir hún lykilatriðið að samstarf milli skólans og viðkomandi fyrirtækja sé gott. Harpa segir að lengi hafi verið horft til þess að taka upp þennan þátt í náminu og með gerð nýrrar námsskrár hafi þetta verið mögulegt. Tækniskólinn hafi í fyrsta skipti prófað slíkt vinnustaðanám sl. vetur og það hafi gefið góða raun. Reynsla hans muni nýtast vel við skipulagningu og framkvæmd vinnustaðanáms hársnyrtinema í VMA.

„Ég tel að þetta sé mjög jákvætt skref á allan hátt. Það er vert að undirstrika að hér er um að ræða námsáfanga til jafns við aðra námsáfanga sem nemendur taka hér í skólanum og þeir þurfa að sjálfsögðu að standast hann. Að mínu mati ætti vinnustaðanám á þessum tímapunkti að auðvelda nemendum að komast að raun um hvort þeir vilji leggja þetta starf fyrir sig í framtíðinni. Það gæti líka auðveldað áhugasömum nemendum að komast síðar á námssamning. Í lok annarinnar munum við hitta meistarana á stofunum og fara yfir hvernig til hafi tekist. Ég hef fulla trú á að hér sé verið að taka gott skref fram á við í þessu námi,“ segir Harpa Birgisdóttir í viðtali við heimasíðu VMA.


UMMÆLI