Vor í Vaglaskógi – Kammertónleikar í Hofi

Brasstríó Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands leikur verk eftir Poulenc, Bizet, Hull, Mozart og Bach.

Síðustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á þessu starfsári eru laufléttir kammertónleikar með Brasstríói Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Efnisskráin er létt og skemmtileg eins og vorvindurinn, blanda af þekktum þjóðlögum og verkum höfuðtónskálda sígildrar tónlistar.

Tónleikarnir verða haldnir annan í hvítasunnu, þann 21. maí, kl. 16:00 í Hofi.

Miðasala er hafin á mak.is.

Brasstríó Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands:

Franskt horn: Ella Vala Ármannsdóttir

Básúna: Carlos Caro Aguilera

Trompet: Vilhjálmur Sigurðarson

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó