Prenthaus

Vorhreinsun að hefjast á AkureyriMynd: Akureyri.is

Vorhreinsun að hefjast á Akureyri

Vorhreinsun í hverfum Akureyrarbæjar fer fram þegar snjór og klaki er farinn af götum og stéttum. Stofnbrautir, tengi- og safngötur, húsagötur og gönguleiðir eru sópaðar. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

„Áður en sópað er í einstökum hverfum/húsagötum eru íbúar látnir vita á síðu viðkomandi hverfis á Facebook auk þess sem merkingar eru settar upp í hverfinu áður en byrjað er að sópa. Þvottur á götum er ekki hluti af þessari vorhreinsun, enda eru götur almennt sópaðar áður en þær eru þvegnar,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

„Íbúar eru hvattir til að sópa og þrífa við hús sín áður en götur eru sópaðar. Til að auðvelda okkur þrifin eru íbúar einnig hvattir til að færa bifreiðar sínar og önnur farartæki af almennum svæðum í götum. Ekki er farið inn fyrir lóðarmörk til að sópa.“

Í næstu viku er fyrirhuguð vorhreinsun á Oddeyri og í Innbæ. 

Sambíó

UMMÆLI