Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

10 bestu – Guðríður Sveinsdóttir

10 bestu – Guðríður Sveinsdóttir

Guðríður Sveinsdóttir, kennari í Giljaskóla, er nýjasti gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í hlaðvarpsþættinum sívinsæla 10 bestu. Hlustaðu á spjallið þeirra í spilaranum hér að neðan.

Sjá einnig: Guðríður Sveinsdóttir tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2022

„Guðríður er tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna sem framúrskarandi kennari árið 2022. Hún er gift Heiðari Davíð Bragasyni sem er yfirgolfkennari hjá GA. En þau bjuggu saman í Svíþjóð og Luxemborg meðan hann var atvinnumaður í golfi. Hún segir okkur svo söguna þegar þau ákváðu að flytja heim í kringum hrunið meðan Heiðar var styrktur af bönkunum sem féllu. En svo voru þau búsett á Dalvík í 10 ár sem áttu að vera sex mánaða stopp og eru nú búsett á Akureyri. Virkilega gott spjall við þennan metnaðarfulla kennara sem ætlaði aldrei að verða kennari. Hún er einnig menntaður hagfræðingur og stóð á krossgötum þegar hún gat valið á milli þess að fara að kenna eða fara í bankana að vinna. Valið var auðvelt. Takk fyrir gott spjall Guðríður,“ segir Ásgeir um þáttinn.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó