31 smit staðfest á Norðurlandi eystra og 402 í sóttkví

31 smit staðfest á Norðurlandi eystra og 402 í sóttkví

31smit vegna COVID-19 hefur nú verið staðfest á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram á covid.is þar sem nýjustu tölur vegna smita voru birtar klukkan 13. 23 smit hafa verið staðfest á Akureyri.

Sjá einnig: 23 smit á Akureyri

Þetta er mesta fjölgun í smitum sem hefur orðið á milli daga á svæðinu en staðfestum smitum fjölgar um níu síðan í gær þegar þau voru 22. Aldrei hefur smitum fjölgað um fleiri en þrjú á svæðinu áður. 402 einstaklingar eru nú í sóttkví, einum fleiri en í gær.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

UMMÆLI