AK-Extreme snýr aftur í ár

AK-Extreme snýr aftur í ár

Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK-Extreme verður haldin í ár. Þetta tilkynnir tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti á Twitter í dag þegar hann spyr fylgjendur sína hvaða tónlistarfólk það vill fá á hátíðina.

Það urðu margir fyrir vonbrigðum í fyrra þegar tilkynnt var að hátíðin yrði ekki haldin 2019 eins og stóð til en þetta hefur verið gríðarlega vinsæll viðburður meðal bæði snjóbrettafólks og tónlistarunnenda. Hátíðin hefur vakið mikla athygli hérlendis og erlendis, enda þykir það einstakt að búa til stökkpall úr vörugámum í miðjum bænum.

Hátíðin í ár verður haldin helgina 3.-5. apríl en mikill undirbúningur hefur verið hjá skipuleggjendum.

Emmsjé Gauti sagði í samtali við Kaffid.is á síðasta ári þegar ljóst var að hátíðin yrði ekki haldin að þetta væri erfið ákvörðun en nauðsynleg til að halda gæði hátíðarinnar í húfi. Með því að taka eitt ár í pásu gæfi það skipuleggjendum tækifæri til að skipuleggja hátíðina 2020 enn betur. „Við erum nú þegar búnir að tryggja okkur nýja og betri staðsetningu sem gefur okkur tækifæri á að stækka bigjumpið. Nýja svæðið býður upp á mjög mikla möguleika s.s. betra aðgengi, minna rask á umferð, stærri pall og meira augnakonfekt fyrir áhorfendur,“ sagði Gauti í samtali við Kaffið á síðasta ári.

Nánari upplýsingar um hátíðina eru væntanlegar þegar nær dregur og Kaffið fylgist að sjálfsögðu vel með. Einnig er hægt að fylgjast með á heimasíðu viðburðarins hér.

TENGDAR FRÉTTIR

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó