Akureyrarkirkja fellur frá skaðabótamáli

Akureyrarkirkja fellur frá skaðabótamáli

Akureyrarkirkja hefur fellt niður skaðabótamál vegna skemmdaverka sem unnin voru á kirkjunni í upphafi árs 2017 og er málinu því að fullu lokið. Endurbætur á kirkjunni verða fjármagnaðar með öðrum leiðum.

Sjá einnig: Akureyrarkirkja höfðar mál gegn skemmdarvarginum sem talinn var ósakhæfur

„Í kjölfar fréttaflutnings af dómsmálinu hafði margt gott fólk samband við sóknarnefnd og lýsti vilja til að leggja henni lið ef hægt væri að finna aðrar leiðir til að mæta kostnaði við lagfæringu vegna skemmdanna. Úrbótakostnaður varð umtalsvert hærri en styrkir sem fengust til framkvæmdarinnar,“ segir í tilkynningu.

Akureyrarkirkja er ein helsta táknmynd Akureyrar og nýtur mikils velvilja í samfélaginu. Sóknarnefnd hefur fengið til liðs við sig hóp valinkunnra einstaklinga sem hafa tekið að sér að stýra fjáröflun sem hefur það að markmiði að sóknarnefnd geti mætt verkefni sínu með liðsinni hollvina kirkjunnar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó