Andri Már Mikaelsson íshokkímaður ársins

Andri Már Mikaelsson í landsleik.

Andri Már Mikaelsson í landsleik.

Íshokkísamband Íslands hefur tilkynnt að Andri Már Mikaelsson, leikmaður Skautafélags Akureyrar, er íshokkímaður ársins 2016 hjá sambandinu en eins og við greindum frá í gær hlaut Andri Már sömu verðlaun hjá Skautafélagi Akureyrar.

Andri Már hefur lengi verið í lykilhlutverki í liði SA og hjálpaði liðinu að verða Íslandsmeistari á síðustu leiktíð. Þá hefur hann einnig leikið fjöldann allan af landsleikjum fyrir Íslands hönd.

Í umsögn íshokkísambandsins um Andra segir:

Andri Már hefur nánast alla sína tíð búið á Akureyri, er 26 ára gamall og hefur spilað með Skautafélagi Akureyrar frá unga aldri.  Andri Már varð Íslandsmeistari á síðasta tímabili með SA Víkingum og var þar fyrirliði. Andri Már hefur unnið fjölda íslandsmeistaratitla með liði sínu á Akureyri og og hefur einnig leikið erlendis tvö tímabil, fyrst með Mörrum Hockey og svo Aseda IF. Andri Már byrjaði ferilinn á barnsaldri eins og margir Akureyringar og 15 ára gamall gekk hann til liðs við meistaraflokk SA.  Andri Már hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands og  hefur tekið þátt í átta heimsmeistaramótum karlalandsliðsins.

Andri Már er frábær íshokkímaður, góð fyrirmynd fyrir unga sem eldri leikmenn. Andri Már er leiðtogi sem nær vel til hópsins, þekktur fyrir baráttu sína og vinnusemi inná ísnum og er íshokkíhreyfingunni til mikilla sóma.

Sjá einnig

Andri Már Mikaelsson íshokkímaður SA árið 2016

Sambíó

UMMÆLI