Ásthildur telur þörf á göngum

Ásthildur telur þörf á göngum

Ástihildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir í Facebook-færslu að það þurfi að fara að huga alvarlega að jarðgöngum milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og á fleiri stöðum á landinu. Ásthildur skrifaði um lokun Öxnadalsheiði og nauðsyn jarðganga af því tilefni á Facebook í gær.

Ófært hefur verið vegna veðurs víða um land yfir páskahelgina og Öxnadalsheiðin var lokuð tvo daga í röð.

„Þjóðvegur eitt lokaður annan daginn í röð um Öxnadalsheiði. Held að það liggi í augum uppi að það þarf að huga alvarlega að jarðgöngum milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og fleiri stöðum á landinu ef ég mætti ráða,“ skrifar Ásthildur á Facebook.

Sjá einnig: „Akureyringar myndu aldrei segja að ég væri Akureyringur“


UMMÆLI

Sambíó