Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Barnabókahátíð í Hofi

Barnabókahátíð í Hofi

Barnabókahátíð í Hofi fer fram í Hofi miðvikudaginn 18. og fimmtudaginn 19. maí.

Rithöfundurinn Bjarni Fritzson verður með ritlistarsmiðju klukkan 17 á miðvikudeginum þar sem hann kennirþátttakendum galdurinn á bak við að skrifa fyndna, spennandi og skemmtilega metsölubók. Bjarni mun fara skref fyrir skref yfir ritferlið sem hann fer í gegnum þegar hann skrifar Orra óstöðvandi bækurnar sínar en hann hefur hlotið Bókaverðlaun barnanna síðastliðin tvö ár. Ritlistarsmiðjan er fyrir alla krakka á aldrinum 10-12 ára. Skráning fer fram á mak.is

Sama dag klukkan 18 er komið að ritlistarsmiðju Gunnars Helgasonar. Gunni ætlar að segja frá leyndarmálunum sínum og kenna krökkum að búa til sín eigin meistarverk. Áherslan er á Mömmu klikk! Draumaþjófinn og nokkrar Pixar- og Disneymyndir. Ritlistarsmiðjan er fyrir alla krakka á aldrinum 10-16 ára. Skráning fer fram á mak.is  

Á fimmtudeginum verður sannkallaður höfundahasar þegar barnabókahöfundarnir Bjarni Fritzson, Brynhildur Þórarinsdóttir og Gunnar Helgason lesa úr eigin verkum. Rán Flygenring, barnabókahöfundur og myndskreytir, snarteiknar á staðnum eins og henni einni er lagið. Áhugasamir geta prófað í lok viðburðar að snarteikna með hjálp Ránar. Vinningshafi Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, Snjóki M. Gunnarsson frá Oddeyrarskóla, kemur einnig fram. Viðburðurinn hefst klukkan 16.30 og fer fram í Hömrum. Öll velkomin.

Hátíðin er samastarfsverkefni Menningarhússins Hofs, Barnabókaseturs Íslands, Giljaskóla og Naustaskóla og er styrkt af Upbyggingarsjóði SSNE og Akureyrarbæ. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó