Birkir Heimis með kórónaveiruna: „Maður kemur bara sterkari til baka“

Birkir Heimis með kórónaveiruna: „Maður kemur bara sterkari til baka“

Akureyringurinn Birkir Heimisson hefur greinst með kórónaveiruna. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

Birkir er fyrsti leikmaðurinn í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu sem hefur greinst með kórónuveiruna svo vitað sé. Hann fann fyrir veikindum í síðustu viku og greindist í gær með veiruna.

Sjá einnig: 31 smit staðfest á Norðurlandi eystra og 402 í sóttkví

Birkir segir í samtali við Fótbolta.net í dag að hann hafi verið rúmliggjandi í síðustu viku með mikla beinverki, hita, höfuðverk og kvef. Það sé ekki búið að finna út hvernig hann smitaðist en næstu skref séu einangrun í 14 daga.

„Ég er orðinn einkennalaus núna og líður bara ágætlega. Auðvitað svekkjandi að fá þessar fréttir og vera hent í einangrun. En svona er þetta bara og maður kemur bara sterkari til baka,“ segir Birkir á Fótbolti.net.

Birkir spilar nú fyrir lið Vals í Pepsi Max deild karla en hann kom þangað frá Heerenveen í Hollandi síðasta haust. Þessi efnilegi leikmaður hóf feril sinn hjá Þór Akureyri áður en hann fór til Hollands árið 2016.

UMMÆLI

Sambíó