Búið að opna rafskútuleigu Hopp á Akureyri

Búið að opna rafskútuleigu Hopp á Akureyri

Í gær opnaði deililega fyrir rafskútur á Akureyri undir merkjum Hopp. Axel Jensen opnar reksturinn á Akureyri sem sérleyfi. 65 rafskútur af nýjustu árgerð voru teknar í gagnið í gær og eru bæjarbúar þegar byrjaðir að nýta sér þjónustunda.

Sjá einnig: Rafskútur Hopp ná yfir alla byggð á Akureyri og drífa upp gilið

Hægt verður að leigja rafskúturnar í gegnum smáforrit á snjallsímum. Hámarkshraði rafskútanna er 25km/klst og komast þær hátt í 55km á einni hleðslu.

Fyrir þá sem ekki vita er Hopp alíslenskt fyrirtæki sem býður upp á þjónustu þar sem hægt er að leigja rafskútur innan ákveðins þjónustusvæðis. Notendur aflæsa rafskútunum með appi og geta síðan keyrt um á þeim gegn
vægu gjaldi. Þegar ferðinni er lokið er hægt að leggja rafskútinni hvar sem er innan þjónustusvæðisins. Það mun sem sagt vera hægt að hoppa alla leið suður á Stórhöfða svo lengi sem að ferðin endi aftur inni á þjónustusvæðinu
í bænum.

Líkt og í Reykjavík mun Hopp á Akureyri sjá til þess að þjónustan gagnist heimamönnum fyrst og fremst. „Markmiðið er að bjóða einstaklingum upp á umhverfisvænan, ódýran og handhægan ferðamáta til þess að komast leiðar sinnar á svæðinu,“ segir í tilkynningu frá Hopp.

„Það mun kosta 100 kr. að aflæsa rafskútunum og svo 30 kr. hver mínúta í leigu þar á eftir. 6 mínútna ferð, frá Lundarhverfi og niður í miðbæ mun því kosta um 250 krónur. Einnig er hægt að setja hjólið í „pásu“ og kostar þá mínútan 20 kr. Þeir sem sækja Hopp appið á Akureyri fyrir næsta mánudag fá tvær fríar 15 mínútna ferðir á skútunum.“

UMMÆLI

Sambíó