Einn í haldi lögreglu eftir eldsvoðann

Einn í haldi lögreglu eftir eldsvoðann

Einn er í haldi lögreglu eftir að eldur kviknaði í gömlu húsi á Akureyri í nótt. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Sjá einnig: Eldur kom upp í gömlu íbúðarhúsi á Akureyri

Tveir einstaklingar, karl og kona, í íbúð á efri hæð hússins, tilkynntu um eldinn um hálf tvö leytið í nótt. Þau komu sér sjálf út úr húsinu og voru flutt á bráðamóttöku til skoðunar.

Eldurinn kviknaði í íbúð á neðri hæðinni en einstaklingurinn sem bjó þar var handtekinn og er enn í haldi. Hann verður yfirheyrður síðar í dag en málið er enn í rannsókn.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó