Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Fólk sérstaklega beðið að fara ekki of nærri GlerárlóniMynd: Ólafur Rúnar Ólafsson

Fólk sérstaklega beðið að fara ekki of nærri Glerárlóni

Miklar leysingar hafa verið á Norðurlandi undanfarið og nú er gríðarlegt vatsmang í ám og lækum. Á vef Norðurorku segir að nú sé þó líklegt að það fari að draga heldur úr vatnavöxtum og að það mesta sé yfirstaðið.

Sjá einnig: Myndband: Sjáðu leysingarnar í Glerá – Eyjafjarðabraut lokuð við Möðruvelli og Þverá

„Leysingum sem þessum fylgir mikil áraun á kerfin okkar, allar fjórar veiturnar. Aðveituæðar hita- og vatnsveitu ásamt öðrum lögnum okkar þvera ár og læki víða, auk þess sem ófært er á nokkrum stöðum á starfssvæði okkar eftir að grafist hefur undan vegum með þeim afleiðingum að þeir fara í sundur. Leysingarnar núna hafa lítil áhrif á fráveitukerfið þar sem þær eru að mestu bundnar við ár og læki og þeim fylgir ekki rigning,“ segir í frétt á vef Norðurorku.

Neyðarstjórn Norðurorku hefur komið saman vegna stöðunnar og áfram verður fylgst náið með málum á þeirra starfssvæði. Fólk er hvatt til þess að fara ekki of nálægt bökkum við ár og læki.

„Við viljum hvetja fólk til að fara ekki of nálægt bökkum við ár og læki þar sem víða hefur grafist undan þeim. Göngustígurinn inn Glerárdal er farinn í sundur og göngubrú við Glerárvirkjun I er lokuð. Fólk er sérstaklega beðið að fara ekki of nærri Glerárlóni, en áin er óvenju vatnsmikil þessa dagana eins og áður hefur komið fram. Víða hefur grafist undan bökkum árinnar og því hvetjum við foreldrar og forráðamenn sérstaklega til að brýna fyrir börnum að fara ekki of nálægt svæðinu. Það er vissulega tilkomumikið, en þó um leið óhugnalegt, að finna og sjá hversu mikil orka býr í vatninu. Við þurfum öll að muna að fara varlega og bera virðingu fyrir hættum sem finna má víða þessa dagana.“

Fallorka, dótturfyrirtæki Norðurorku, á og rekur fjórar vatnsaflsvirkjanir í Eyjafirði. Tvær virkjanir í Djúpadalsá í Eyjafjarðarsveit og tvær í Glerá sem rennur í gegnum bæinn. Leysingarnar hafa sannarlega haft áhrif á þær og er staðan þannig að báðar Glerárvirkjanirnar hafa verið teknar úr rekstri, m.a. vegna mikils gróðurs sem er að setjast á inntaksristar. Vatn flæddi inn í efra stöðvarhús Djúpadalsvirkjunar í gær en þar eru þó báðar stöðvar í gangi.

UMMÆLI