Forgangsmál að koma í veg fyrir svifryksmengun: „Óskaplega döpur að sjá niðrandi og svívirðandi talsmáta bæjarbúa“

Forgangsmál að koma í veg fyrir svifryksmengun: „Óskaplega döpur að sjá niðrandi og svívirðandi talsmáta bæjarbúa“

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri tjáði sig um svifryksmengun á Akureyri á Facebook síðu sinni í dag. Hún segir dapurlegt að sjá niðrandi og svívirðandi talsmáta bæjarbúa á samfélagsmiðlum í garð bæjarfulltrúa og embættismanna. Það sé algjört forgangsmál að koma í veg fyrir svifryksmengun sem hefur skaðleg áhrif heilsu íbúa og gesti Akureyrarbæjar og að það vilji enginn að bærinn sé drullusvað líkt og reyndin hefur verið síðustu daga.

Sjá einnig: „Líklega hvergi fleiri bílar á íbúa í allri Evrópu en á Akureyri“

„Undanfarin ár hafa loftgæði á Akureyri verið slæm og svifyk ítrekað farið langt yfir heilsufarsmörk dögum saman. Það er mjög alvarlegt ástand og bænum ber að bregðast við með afgerandi hætti. Síðastliðin ár hefur brugðist við með því að hreinsa götur betur og oftar, en það hefur ekki nægt til að koma svifryki í ásættanleg mörk. Svifryk er ekki bara óheppilegt og óþægilegt, heldur getur það verið verulega heilsuspillandi, ekki síst fyrir þá sem veikir eru fyrir,“ skrifar Hilda og bætir við að það sé ekki í boð að gera ekki neitt varðandi svifrykið sem talið er að megi rekja til 60-80 ótímabærra andláta á Íslandi árlega.

Hilda segir að það séu fjölmargar hliðar á málinu, bæði er varðar orsakir og lausnir. „Frá mínum bæjardyrum séð þá þurfum við að halda áfram að þróa leiðir til með það að markmiði að finna varanlegar lausnir gegn svifryki án þess að bærinn okkar breytist í varanlegt drullusvað.“

Í Reykjavík stendur til að takmarka eða banna bílaumferð tímabundið til að draga úr svifryksmengun, en lög sem heimila slíkt taka gildi um áramótin. Hilda segir að það sé vissulega ein leið sem hægt er að skoða en á Akueyri hafi verið valin önnur leið fyrst um sinn.

„Á Akureyri hófst í fyrra tilraunaverkefni við að sjóþvo götur til að rykbinda (og nei það er ekki hætta á saurgerlamengun þaðan sem sjórinn er tekinn samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisfulltrúa). Góðu fréttirnar eru að svifrykið fellur algjörlega niður þegar sjónum er sprautað á göturnar. Slæmu fréttirnar eru að í þeim veðurskilyrðum sem voru hér síðustu daga, breyttist bærinn í eitt drullusvað með tilheyrandi áhrifum á bíla, föt og geðheilsu bæjarbúa. Það má kannski líkja þessari stöðu við það að fá lyf hjá lækni við alvarlegum veikindum, en svo fylgja lyfinu óþolandi aukaverkanir,“ skrifar hún.

Hún segir að nú muni aðgerðarhópur Akureyrarbæjar, Vegagerðarinnar og Heilbrigðiseftirlitsins um svifryk og hálkuvarnir fara yfir málin og leggja til betri lausnir sem hafa ekki jafn slæmar afleiðingar en færslu hennar má sjá í heild sinni hér að neðan.

Sambíó

UMMÆLI