Gangbrautarljósin á Hörgárbraut

Gangbrautarljósin á Hörgárbraut

Í upphafi mánaðar var kveikt á nýju gangbrautarljósunum á Hörgárbraut norðan við Glerárbrú. Ljósin voru tekin í notkun þriðjudaginn 6. nóvember.

Sjá einnig: Íbúar í Holta- og Hlíðarhverfi ósáttir eftir enn eitt slysið

Talsverð töf var á afhendingu ljósanna og stýribúnaði þeirra en lokið var við frágang og uppsetningu stauta síðasta sumar.

Í umsögn um ljósin á heimasíðu Akureyrarbæjar segir:

Ljósin eru dönsk og af afar fullkominni gerð. Tölva sem stýrir ljósunum sendir frá sér boð ef bilanir verða og hnapparnir á gangbrautarljósunum eru með skynjara sem nemur umferðarhávaða og hækkar og lækkar hljóðmerki til samræmis við hann. Þá eru í ljósunum LED perur sem endast miklu mun lengur en annars konar perur. Loks eru ofan á hnöppunum eins konar „þreififlötur“ sem gefur blindum og sjónskertum til kynna hvernig leiðin yfir götuna er, þ.e.a.s. að tvær akreinar eru í hvora átt og á miðri leið er umferðareyja.

UMMÆLI