Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Garðar Kári keppir til úrslita í Kokkur Ársins 2018

Keppendur í úrslitum í Kokkur Ársins 2018 F.v. Þorsteinn Geir Kristinsson Fiskfélaginu, Sigurjón Bragi Geirsson Garra, Iðunn Sigurðardóttir Matarkjallaranum, Bjartur Elí Friðþjófsson Grillmarkaðnum, Garðar Kári Garðarsson Deplar Farm.

Í dag fór fram undanúrslit um titilinn Kokkur ársins 2018 en keppnin fór fram á Kolabrautinni í Hörpu.

Átta keppendur elduðu þrjá smárétti úr ýsu, grísakinn & kjúklingaskinni og rófum.

Fimm efstu keppendur voru valdnir af dómnefnd en þeir keppendur sem komust áfram og keppa til úrslita laugardaginn 24. febrúar í Flóa í Hörpu eru:

  • Bjartur Elí Friðþjófsson, Grillmarkaðnum
  • Garðar Kári Garðarsson, Eleven Experience- Deplar Farm
  • Iðunn Sigurðardóttir, Matarkjallaranum
  • Sigurjón Bragi Geirsson, Garra
  • Þorsteinn Kristinsson, Fiskfélaginu

Í úrslitakeppninni sem fram fer í Flóa Hörpu eiga keppendur að elda 3ja rétta matseðil úr svokallaðir leyni körfu. Þ.e. keppendur fá að vita degi fyrir keppni úr hvaða hráefni þeir eiga að elda og hafa svo 5 klst til að undirbúa matinn. Húsið er opið fyrir alla gesti frá kl: 13 – 18, eftir kl 18:00 er einungis opið fyrir gesti sem hafa tryggt sér miða á viðburðinn þar sem Andri Freyr og Kokkalandsliðið munu sjá um stemninguna samhliða keppninni. Kokkur ársins 2018 verður svo krýndur kl 22:45.

Sjá einnig:

Garðar Kári Garðarsson kominn í undanúrslit í Kokkur Ársins

UMMÆLI