Leigusamningur um Laxdalshús undirritaðurMagnús Jón Magnússon og Jónína Björg Helgadóttir eigendur Majó ehf. og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fyrir utan Laxalshús í gær. Mynd: Akureyri.is

Leigusamningur um Laxdalshús undirritaður

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri og Jónína Björg Helgadóttir, myndlistarkona, fyrir hönd Majó ehf., undirrituðu í gær samning til fjögurra ára um leigu á Laxdalshúsi. Frá þessu er greint á vef bæjarins.

Sjá einnig: Majó opnar í Laxdalshúsi

Samningurinn gerir ráð fyrir að í húsinu verði listastarfsemi, veitingarekstur og ferðaþjónusta. Þar verður einnig vinnustofa Jónínu Bjargar sem reglulega verður opin almenningi.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri sagði við þetta tilefni að það væri afar ánægjulegt að áfram verði menningarleg starfsemi í Laxdalshúsi sem er elsta hús bæjarins og að það haldist skemmtilega í hendur við að Sigurhæðir vakni nú einnig aftur til lífsins með margvíslegri menningarstarfsemi og viðburðahaldi.

„Fyrir okkur er það mikill heiður að taka við þessu sögufræga húsi og við hlökkum til að hafa hér eitthvert líf í tuskunum,“ sagði Jónína Björg að lokinni undirritun samningsins. Laxdalshús er friðað skv. lögum um menningarminjar og starfsemin skal að taka mið af því.

UMMÆLI