Listasýningin Málað með þræði opnar á morgunMynd: Háskólinn á Akureyri

Listasýningin Málað með þræði opnar á morgun

Sýningin „Málað með þræði“ opnar á morgun, fimmtudaginn 18. janúar, klukkan 16:00 á Bókasafni HA. Allir eru velkomnir á opnunina og verða léttar vetingar í boði. Sýningin verður svo opin á opnunartíma Bókasafnsins sem er 8-16 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Á þriðjudögum og fimmtudögum er opið frá 8-18.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Háskólans, þar sem einnig er að finna þessa lýsingu á sýningunni frá listakonunni sjálfri, Guðrúnu H Bjarnadóttur:

Hefðbundin myndvefnað lærði ég til að byrja með á námskeiði í Svíþjóð. Það leiddi mig áfram til að læra almennan vefnað í vefstól og síðan að sækja um í listadeild lýðháskólans í Eskilstuna þar sem m.a. var kenndur listrænn frjáls myndvefnaður. Af og til gegnum árin hef ég ofið myndvefnað, en aðallega ýmiskonar verk sem eru ætluð sem nytjavefur eða vefnaður á vegg. Nú langaði mig til að gefa myndvefnaðinum tíma. Þessar myndir eru allar unnar út frá teikningum mínum, skissur eða fullunnin verk. Þær hef ég stækkað eða minnkað og breytt svo þau passi veframmanum og efninu sem unnið er með. Einnig urðu til nokkrar tilraunir sem sýndar eru í glösum.

Efnið í verkunum er lín sem uppistaða og ívafið er ullargarn ýmist jurtalitað eða litað mislitt með kemiskum litum, lín og einnig lín sem ég ræktaði og vann tilbúið til spuna í Svíþjóð og spann síðan í risinu í Laugalandsskóla 1997, en þá í einhvern tíma hittumst við nokkrar spunakonur reglulega til að spinna. Í tilraunaglösunum má einnig finna kýrhalahár, koparvír, endurskinsþráð og næfur.

Eftir að hafa lokið námi og unnið sem þroskaþjálfi í Reykjavík í nokkurn tíma, flutti ég til Svíþjóðar og dvaldi þar í 9 ár. Þar lærði ég almennan vefnað í KomVox í Eskilstuna og fór síðan í Eskilstuna folkhögskola, estetisk linje, ásamt því að sækja allmörg námskeið í fornum handverkshefðum. Eftir heimkomu lauk ég námi í Myndlistaskólanum á Akureyri og síðan í kennaradeild Listaháskóla Íslands. Hef einnig sótt fjölmörg námskeið í hinum ýmsu listgreinum.

Ég hef tekið þátt ásamt öðrum í rekstri þriggja gallería, fyrst „Humlan“ í Eskilstuna í Svíþjóð, „Grófin“ opin vinnustofa og gallerí í Listagilinu Akureyri og svo „Samlagið listhús“ Listagilinu Akureyri. Nú hef ég eigin vinnustofu og gallerí sem ég hef rekið frá 2010 „Dyngjan-listhús“ Eyjafjarðarsveit. Þar sem ég vinn að list minni og býð upp á ýmiskonar námskeið og sýningar svo sem „Heimalingar“ árlegar útilistasýningar Myndlistafélagsins á Akureyri. Ég hef tekið þátt í allmörgum einkasýningum og fjölmörgum samsýningum.

Sambíó

UMMÆLI