Origo Akureyri

Lýsa yfir „fullu og óskoruðu trausti“ til Heimis þrátt fyrir ákæru

Lýsa yfir „fullu og óskoruðu trausti“ til Heimis þrátt fyrir ákæru

Meirihluti bæjarstjórnar á Akureyri hefur lýst yfir trausti til Heimis Arnar Árnasonar, forseta bæjarstjórnar Akureyrar. Heim­ir er einn af fimm sak­born­ing­um sem ákærðir hafa verið í tengsl­um við hoppu­kastala­slysið sem varð á Ak­ur­eyri árið 2021.

Sjá einnig: Aðalstjórn KA gefur út yfirlýsingu vegna ákæru á hendur sjálfboðaliðum

Meirihluti bæjarstjórnar sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem lýst var yfir tausti til Heimis. Bæj­ar­full­trú­arn­ir Andri Teits­son, Halla Björk Reyn­is­dótt­ir, Hlyn­ur Jó­hanns­son, Hulda Elma Ey­steins­dótt­ir og Lára Hall­dóra Ei­ríks­dótt­ir skrifa undir yfirlýsinguna sem má lesa í heild hér að neðan. 

Hinn 1 júlí 2021 varð hörmulegt slys í hoppukastala á Akureyri sem kostað hefur ómældar þrautir  og þjáningar.

Nú hefur verið lögð fram ákæra á hendur fimm einstaklingum vegna slyssins og þeirra á meðal er forseti bæjarstjórnar Akureyrar Heimir Örn Árnason.  Heimir Örn var á þeim tíma formaður unglingaráðs handknattleiksdeildar KA sem var í samstarfi við eigendur hoppukastalans og er ákærður sem slíkur.

Forseti bæjarstjórnar skorast ekki undan ábyrgð á nokkurn hátt en rétt er að undirstrika að Heimir  Örn Árnason gengdi engum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið þegar slysið átti sér stað.  Ákæran fer sína leið fyrir dómstólum og snertir ekki núverandi hlutverk hans innan bæjarstjórnar Akureyrar.

Við undirrituð lýsum yfir fullu og óskoruðu trausti til Heimis Arnar Árnasonar, forseta bæjarstjórnar Akureyrar, og starfa hans í þágu sveitarfélagsins og bæjarbúa.

Akureyri 30. Janúar 2023

Andri Teitsson

Halla Björk Reynisdóttir

Hlynur Jóhannsson

Hulda Elma Eysteinsdóttir

Lára Halldóra Eiríksdóttir

UMMÆLI