![María Guðmundsdóttir náði frábærum árangri árið 2016](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2016/12/1482320001_mariag-400x219.jpg)
María Guðmundsdóttir náði frábærum árangri árið 2016
María Guðmundsdóttir og Magnús Finnsson úr Skíðafélagi Akureyrar hafa verið valin í hóp Skíðasambands Íslands fyrir heimsmeistarótið í alpagreinum.
Sjá einnig: Íslensk skíðaiðkun í nauðvörn
Mótið fer fram í St. Moritz í Sviss og stendur frá 6.-19. febrúar. Keppendur eru valdir til þáttöku í svigi og stórsvigi. Í ár verður undankeppni í báðum þessum greinum í fyrsta skipti. Íslenski hópurinn mun dvelja í HM þorpi frá 11.-20. febrúar.
María var valin skíðakona ársins fyrir árið 2016 eftir frábæran árangur á síðasta ári. Í augnablikinu keppir hún fyrir skíðalið Háskólans í Anchorage í Bandaríkjunum þar sem hún stundar nám.
Sjá einnig: María Guðmundsdóttir er skíðakona ársins
Magnús stundar nám í viðskiptafræði við Colorado Mountain College í Steamboat Springs og er einnig í skíðaliði skólans.
![Magnús Finnsson](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/01/10704032_830636090291951_2290110612723255397_n-400x400.jpg)
Magnús Finnsson
UMMÆLI