Múlaberg tilnefnt til tveggja verðlauna í Norðurlandakeppninni Bartender Choice Awards

Múlaberg tilnefnt til tveggja verðlauna í Norðurlandakeppninni Bartender Choice Awards

Veitingastaðurinn og kokteilbarinn Múlaberg, var á dögunum tilnefnt til tveggja verðlauna hjá BCA (e. Bartender‘s Choice Awards). Múlaberg var tilnefnt í flokki Best Cocktail Bar – Iceland og People‘s Choice –  Iceland.

Alls eru tilnefndir þrír staðir í hverjum flokki á landinu en í báðum þessum flokkum eru það kokteilbarinn Jungle, Kokteilbarinn ( Monkey‘s) og Múlaberg sem keppast um titilinn. Til tíðinda telst að Múlaberg er eini staðurinn á landsbyggðinni sem nældi sér í tilnefningar.

Múlaberg gekk undir talsverðar breytingar þegar nýir eigendur tóku við staðnum sumarið 2020 og lögð hefur verið mikil áhersla á barinn, vínúrval og kokteila.

„Það eru svo ótrúlega margir flottir staðir hérna á Íslandi sem eru að gera alveg frábæra hluti, svo við bjuggumst ekki alveg við þessu. En við erum alveg í skýjunum!“ segir Ingibjörg Bergmann, einn af eigendum og veitingastjórum Múlabergs.

Ásamt Ingibjörgu eru það Snæbjörn Bergmann og Hlynur Halldórsson sem reka staðinn, en öll eru þau menntuð í faginu. „Við erum með ótrúlegt teymi með okkur á Múlabergi, gríðarlegur metnaður og fagmennska. Okkar fólk hefur verið að ryðja sér til rúms í geiranum og m.a. unnið til verðlauna í hverri kokteilakeppninni á fætur annarri. Það er ómetanlegt að vinna með svona flottu fólki,“ segir Ingibjörg.

Sjá einnig: Unnur Stella sigraði Arctic Mixologist

Líkt og Kaffið fjallaði um vann Unnur Stella, vaktstjóri á Múlabergi, fyrsta sæti í kokteilakeppni Arctic Challenge og Ýmir Valsson, yfirbarþjónn á Múlabergi, endaði í þriðja sæti. Ýmir vann einnig kokteilakeppnina Rumble in the Jungle, sem haldin var í Reykjavík, annað árið í röð.

Tilnefningar til Bartender Choice Awards (BCA) voru tilkynntar þriðjudaginn 10.janúar á kokteilbarnum Jungle í Reykjavík en BCA er norræn barþjónakeppni. Þar er breið dómnefnd samansett af veitingamönnum frá hverju landi fyrir sig sem tilnefnir þá staði/aðila sem þeim fyrst hafa staðið uppúr úr bransanum í hverjum flokki fyrir sig.

Á komandi vikum mun svo dómnefnd velja sigurvegarann í hverjum flokki og munu þau úrslit verða kynnt þann 12. mars í Kaupmannahöfn á Bartender Choice Awards Gala.

Úrslitin tilkynnt á kokteilbarnum Jungle sl. þriðjudag. Mynd: veitingageirinn.is

Úrslit Bartender Choice Awards – Ísland:
(Tekið af veitingageirinn.is)

Besti barþjónninn:

Jónas Heiðarr
Leo Snæfeld Pálsson
Teitur Ridderman Schiöth

Besta andrúmsloftið:

Jungle
Kaldi Bar
Kokteilbarinn

Besti Kokteilabarinn:

Jungle
Kokteilbarinn
Múlaberg Bistro & Bar

Besti kokteilaseðillinn

Jungle
Kokteilbarinn
Sumac

Besti nýi kokteilabarinn

Bingo
Drykk
Tres Locos

Bestu framþróunaraðilar bransans

Friðbjörn Pálsson
Hlynur Maple
Ivan Svanur Corvasce

Besti signature kokteillinn

Dillagin
Funiks
Nortern Light

Besti veitingastaðurinn

Brút
Monkeys
Sumac

Val fólksins

Jungle
Kokteilbarinn
Múlaberg Bistro & Bar

UMMÆLI