Ný hjólabraut sett upp við Oddeyrarskóla

Ný hjólabraut sett upp við Oddeyrarskóla

Akureyrarbær hefur keypt og sett upp hjólabraut við skólalóð Oddeyrarskóla. Hjólabrautin er fyrir iðkendur á reiðhjóli, hlaupahjóli og hjólabretti á öllum aldri. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Sjá einnig: Foreldrar smíðuðu fótboltavöll í Glerárhverfi

Þar segir um brautina: „Hjólabrautin er flott viðbót í fjölbreytta aðstöðu sem er í boði í heilsueflandi samfélagnu sem Akureyrarbær er.“

Einnig er leyfilegt að hlaupa á brautinni en hún er ekki ætluð rafknúnum tækjum. Brautin var keypt af Lexgames og henni fylgja eftirfarandi reglur:

1. Notaðu hjálmin, alltaf!

2. Verið sanngjörn og skiptist á reglulega.

3. Ef margir eru í einu þá gott er að skipta niður í hópa eftir hraða, hjólum, hlaupahjólum, línuskautum eða hjólabrettum.

4. Kennið þeim sem ekki kunna á brautina og þá verða allir hraðari.

5. Ekki stoppa í brautinni. Ef þú sérð einhvern stopp þá farðu strax útúr brautinni svo ekki myndist biðröð.

6. Bannað að standa inn í braut. Ekki labba á brautinni eða vera inn í hringnum.

7. Farið varlega! Farið varlega inná brautina og ekki stoppa í brautinni.

UMMÆLI