Rakel, Salome Katrín og Zaar fluttu lagið While We Wait í Vikunni með Gísla Marteini

Rakel, Salome Katrín og Zaar fluttu lagið While We Wait í Vikunni með Gísla Marteini

Akureyringurinn Rakel Sigurðardóttir, kom fram í Vikunni með Gísla Marteini síðasta föstudag og flutti lagið While We Wait ásamt Salóme Katrínu og ZAAR.

Þann 25. febrúar gáfu þær saman út splitt-skífuna, While We Wait, sem samanstendur af sjö lögum, tveimur eftir hverja tónlistarkonu og einu sem þær sömdu í sameiningu og er einmitt titillag plötunnar, While We Wait.

Sjá einnig: Rakel, JóiPé og Hafsteinn fluttu lagið Ég var að spá í Vikunni með Gísla Marteini

Salóme Katrín, RAKEL & ZAAR búa allar og starfa í Reykjavík. Þær kynntust við nám í tónlistarskóla FÍH árið 2018 þegar Sara kom sem skiptinemi frá Danmörku og hafa verið óaðskiljanlegar síðan – bæði sem vinir og sem tónlistarkonur. Síðastliðin ár hafa þær allar stigið fram á sjónarsviðið á ólíkum tímum. ZAAR gaf út stuttskífuna sína Lost My Sense of Humour árið 2019, Salóme Katrín fylgdi svo með stuttskífunni Water árið 2020 og RAKEL gaf út stuttskífuna Nothing Ever Changes árið 2021.

Sjáðu flutningin:

UMMÆLI

Sambíó