Safnið – Ylströnd við Glerá

Safnið – Ylströnd við Glerá

Fréttir af fyrirhuguðum baðstað í landi Ytri-Varðgjár – Ætla að byggja baðstað og nýta heitt vatn úr Vaðlaheiðargöngunum – vöktu hugrenningatengsl við gamla grein úr ranni Grenndargralsins. Á erfiðum tímum í kjölfar efnahagskreppunnar 2008 varð að hugsa út fyrir rammann. Grenndargralið viðraði á sínum tíma hugmyndir um viðbrögð við ástandinu. Hugmyndirnar voru þá meira hugsaðar sem afþreying frekar en raunhæfar tillögur en þó að einhverju leyti vettvangur til að sá mögulegum fræjum á krepputímum. Grenndargralið rótar í safninu og glæðir gamla hugmynd lífi á Covid-tímum. Hugmyndin um suðræna ylströnd við Glerá spratt fram á köldum vordögum árið 2013.

Af hverju segjum við ekki kuldatíðinni stríð á hendur og útbúum okkar eigin mini-útgáfu af Benidorm við Glerá á Akureyri? Af hverju ekki? Ég meina, hvað er málið með þetta tíðarfar? Við fáum 1-2 daga inn á milli þar sem sést til sólar en annars blæs bara kaldur vindur. Snjóhvítar Súlurnar blasa við manni öllum stundum svona til að koma endanlega í veg fyrir að maður komist í sumargírinn.

Sumarþyrstir Akureyringar gera þó sitt til að skapa sumarstemningu. Löngunin eftir hlýindum er slík að þegar hitastigið nær 7-8 gráðum rýkur íssala upp úr öllu valdi, fólk sest niður fyrir utan kaffihúsin með sólgleraugu og á stuttermabolum með svalandi drykk í hendi og ungir ökumenn þeysast um götur bæjarins með blæjuna niðri. Í versta falli leggjum við öll plön tímabundið til hliðar á meðan við fjármögnum sólarlandaferð til þess eins að fylla forðabúrið af D-vítamíni því óvíst er hvort íslenska sumarið nái að fylla á tankinn. Við erum stöðugt minnt á hversu dynttóttir veðurguðirnir eru og þar sem okkur þyrstir svo mjög  í raunverulega suðræna upplifun hljótum við að velta því fyrir okkur hvort við ættum ekki hreinlega að búa til heita ylströnd í heimabyggð.

Er það hægt? Af hverju ekki? Hugmyndin er svo sem ekki ný af nálinni þar sem bent hefur verið á pollinn milli Drottningarbrautar og Aðalstrætis. Hér skal nefndur annar kostur til sögunnar. Lónið fyrir ofan Glerárvirkjun gæti orðið vinsælasti staðurinn á Akureyri yfir sumartímann. Til að byrja með er staðurinn að mörgu leyti heillandi í þeirri mynd sem hann er núna. Skemmtilegur pollur með fallegri göngubrú og vísi að klettum í suðri en aflíðandi graslendi og vísi að sandströnd í norðri. Og þetta er nú þegar allt til staðar, samspil náttúru og manna. Engu að síður þarf að taka verulega til hendinni á svæðinu ef hugmyndin um suðræna ylströnd á að komast á koppinn.

Hvað þurfum við að gera? Við búum til stórt og öflugt  glervirki sem virkar eins og skjöldur gagnvart köldum vindi en hleypir sólinni í gegn. Aflangur glerkúpull sem staðsettur verður norðan lónsins, þeim megin sem sandströndin er. Já ég veit, slíkt mannvirki tekur á sig mikinn vind og snjó og jarijarija. Ég minni einfaldlega á hugvit og tækniþekkingu mannsins en umfram allt viljann til að vinna framsæknum hugmyndum brautargengi. Glervirkið þarf vissulega að þola íslenska veðráttu. Færir verkfræðingar ráða fram úr því. Sunnanáttin er okkur að mestu hliðholl auk þess sem hækkandi landslag veitir skjól. Lónið er hins vegar berskjaldað gagnvart norðanáttinni og því kæmi glervirkið að góðum notum þar. Kúpullinn er aðeins opinn í suður þ.e. í átt að volgu lóninu. Já, við getum ekki boðið fólki að upplifa alvöru strandarstemningu ef vatnið er jökulkalt. Við dælum því heitu vatni í lónið og jöfnum út hitastigið þannig að hægt verði að taka sér sundsprett án þess að krókna úr kulda.

Nú þegar búið er að tryggja notalegt hitaastig í lofti, láði og legi er hægt að klára það sem upp á vantar til að gera ströndina okkar samkeppnisfæra við Spánarstrendur. Fólk getur valið um að liggja á sólbekkjum inni í glerhýsinu eða á sandinum við lónið ef hitinn verður óbærilegur innandyra. Sandurinn er enn eitt lykilatriðið í að skapa rétta stemningu. Með því að lengja sandströndina og gera hana snyrtilega má laða fólk að. Á graslendinu ofan við sandströndina má reisa smáhýsi þar sem boðið verður upp á þjónustu af ýmsu tagi. Ís til sölu, svalandi drykkir, léttir réttir, sólarvörn, sundkútar, leiga á ýmiskonar varningi svo sem smábátum og sæsleðum. Ekki má nú gleyma salernisaðstöðunni fyrir þambandi gesti í spreng. Setja mætti upp aðstöðu fyrir fólk til að grilla pylsur og sykurpúða. Ekki er lengi verið að útbúa strandblakvöll.

Jafnvel mætti koma fyrir hljóðkerfi  á svæðinu og annarri aðstöðu fyrir tónlistarmenn til að troða upp. Hver vill ekki upplifa 30 gráðu hita við Glerána á sundfötunum einum með svífandi sæsleða fyrir framan sig og lifandi tónlist sumarhljómsveita á borð við Síðan skein sól, Á móti sól og Sóldögg í eyrunum? Viðskipta og menningarhugmynd á krepputímum? Af hverju ekki?  

Heimild: Grenndargralið.

Sá hluti myndarinnar sem sýnir meðlimi hljómsveitarinnar SS Sól er fengin af mbl.is. Myndina tók Jón Svavarsson árið 1999.

Sambíó

UMMÆLI