Staðfest smit orðin 33 á Norðurlandi eystra

Staðfest smit orðin 33 á Norðurlandi eystra

33 smit vegna Covid-19 hafa nú verið staðfest á Norðurlandi eystra. Það fjölgar því einungis um tvö smit frá tölum gærdagsins.Þetta kemur fram á covid.is þar sem nýjustu tölur vegna smita voru birtar klukkan 13.

Sjá einnig: 23 smit á Akureyri

Mikil fjölgun var í smitum frá sunnudegi til mánudags en þá fór talan úr 22 í 31. Einstaklingum í sóttkví fækkar enn og nú eru 399 einstaklingar í sóttkví á svæðinu en í gær voru þeir 402.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.


UMMÆLI

Sambíó