Stéttarfélög í Þingeyarsýslum styrkja HSN um 1 milljón króna

Fulltrúar stéttarfélaganna og Lions klúbbsins við undirritunina.

Fulltrúar stéttarfélaganna og Lions klúbbsins við undirritunina.

Fulltrúar stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum og Lionsklúbbur Húsavíkur undirrituðu á dögunum áframhaldandi samstarf um stuðning við verkefni Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, HSN, vegna  forvarna gegn ristilkrabbameini. Sömu aðilar hafa staðið fyrir verkefninu síðustu 5 ár og mun það nú halda áfram til ársins 2021.

Í ljósi reynslunnar og mikilvægi þessara forvarna hafa aðstandendur verkefnisins ákveðið að halda því áfram með stuðningi úr samfélaginu. Stéttarfélögin leggja verkefninu til 1 milljón króna. Þannig verður áfram hægt að bjóða öllum einstaklingum sem verða 55 ára á ári hverju og eru búsettir á svæði HSN að gangast undir endurgjaldslausa ristilspeglun hjá HSN á Húsavík.

Sjá einnig: Kvensjúkdómalæknir gefur öll tækin sín

Stéttarfélögin sem standa að verkefninu eru: Framsýn, Þingiðn, Starfsmannafélag Húsavíkur og Verkalýðsfélag Þórshafnar.

 

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó