Um 3100 skammtar af bóluefni til HSN á morgun

Um 3100 skammtar af bóluefni til HSN á morgun

Á morgun, 8. júní, fær Heilbrigðisstofnun Norðurlands um 3100 skammta af bóluefni. Pfizer bóluefnið verða m.a. nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 18.-21. maí. Astra Zeneca bóluefnið mun eingöngu verða notað fyrir seinni bólusetningu.

Sjá einnig: Einstaklingar fæddir 1992 fyrstir í handahófs bólusetningu á Akureyri

Nýjir skammtar af Pfizer bóluefninu verða notaðir samkvæmt handahófs bólusetningalista. Sjá hér: handahof_bolusetning_hsn_2021.pdf.  

Í tenglinum má sjá áætlaða tímasetningu á því hvenær árgangar á hverjum stað verða bólusettir. Tímasetning er sett fram með fyrirvara um breytingu.

Bólusetningar á Akureyri

Þriðjudaginn 8. júní er Pfizer bólusetning. Þá er seinni bólusetning og haldið áfram með handahófs aldurshópa. SMS boð verða send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er frá kl. 12:00 – 16:00

Einnig mega þeir koma sem fengu Astra Zeneca fyrir 4 vikum eða meira milli kl 11:00 og 12:00 ef bráðnauðsynlegt er að flýta seinni skammti. Virkni eykst með lengri tíma milli skammta. Ráðlagt að séu 10-12 vikur. Athugið ekki hægt að koma á öðrum tíma.

Miðvikudaginn 9. júní verður haldið áfram að bólusetja með Pfizer og munum við fara áfram niður handahófslista. SMS boð verður send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er frá kl. 12:00 – 15:00

Bólusetning er í boði fyrir:

  • þau sem fá boð um að mæta þessa daga.
  • þau sem eru fædd 1966 og fyrr.
  • þau sem tilheyra árgangshóp sem búið er að draga út.
  • Þau sem hafa fengið boð sem þau hafa ekki nýtt sér.

Bólusetningar á öðrum starfstöðvum

  • Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi mun fólk í þessum hópum fá boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.

UMMÆLI