Vettvangsrannsókn vegna brunans hefst síðdegis

Vettvangsrannsókn vegna brunans hefst síðdegis

Bergur Jónsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri segir að rannsókn vegna brunans í Hafnarstræti sé nú á frumstigi. Slökkviliðið afhenti lögreglu vettvang brunans klukkan 10 í morgun. Þetta kemur fram á mbl.is.

Sjá einnig: Húsið mjög illa farið eftir brunann

Von er á tæknideild lögreglunnar til Akureyrar síðdegis í dag og þá getur vettvangsrannsókn hafist. Full­trúi frá hús­næðis- og mann­virkja­stofn­un mun einnig koma að rannsókninni.

Engar nánari upplýsingar hafa borist til lögreglu vegna líðan mannsins sem fannst rænulaus á miðhæð hússins og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur.

Sambíó

UMMÆLI