Mengun skemmtiferðaskipa á Akureyri

Niðurstöður mælinga Umhverfisstofnunar sýna að áhrif útblásturs af völdum skemmtiferðaskipa í miðbæ Akureyrar voru mjög lítil og vart merkjanleg.

Mælingar á mengun frá skemmtiferðaskipum voru ræddar á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær. EFLA verkfræðistofa tók saman stutt minnisblað um niðurstööður loftgæðamælinga Umhverfisstofnunnar á Akureyri frá mars til júli á þessu ári.

Áhrif útblástur voru vart merkjanleg utan við örfáa toppa sem voru þó allir vel undir heilsuverndarmörkum.

Sjá einnig: Mengunarský yfir Akureyri

Á heimasíðu Akureyrarbæjar segir að möguleiki sé þó á því að sökum þess hve strompar skemmtiferðaskipanna liggja hátt yfir jörðu að útblásturinn berist hátt upp í andrúmslofið. Það geti gert það að verkum að mælistöðin við Strandgötu nemi ekki nema að litlu leyti þennan útblástur.

Af þessum niðurstöðum er þó hægt að draga þá ályktun að útblástur svifryks, niturdíoxíðs og brennisteinsdíoxíðs frá skemmtiferðaskipum hafi ekki haft heilsufarsleg áhrif á fólk í miðbæ Akureyrar eða allra næsta nágrenni á umræddu mælitímabili.

Skýrsluna má nálgast hérna.

Sambíó

UMMÆLI