Atlantsolía lækkar eldsneytisverð á Norðurlandi til muna

Atlantsolía lækkar eldsneytisverð á Norðurlandi til muna

Atlantsolía hefur lækkað verð á eldsneytislítranum á bensínstöðinni við Baldursnes á Akureyri til samræmis við verðstefnu sína í Kaplakrika og á Sprengisandi og býður nú upp á langódýrasta eldsneytislítrann á Norðurlandi.

Bensínlítrinn á Baldursnesi kostar nú 185,5 krónur og dísillítrinn 181,5 krónu, sem er sama verð og á Sprengisandi og í Kaplakrika en almennt listaverð félagsins er í dag 222,7 krónur á lítrann af bensíni og 210,8 krónur á dísillítrann. Allir viðskiptavinir fá sama lága eldsneytisverðið á Baldursnesi óháð fríðindakerfum, meðlimagjöldum eða öðrum afsláttarkjörum.

„Bensínsprengjan okkar í Kaplakrika og á Sprengisandi hefur fengið frábærar viðtökur og breytti landslaginu á eldsneytismarkaðinum svo um munar neytendum til hagsbóta. Þó Atlantsolía sé eitt minnsta olíufélag landsins hefur fyrirtækið alltaf verið leiðandi í að sprengja upp eldsneytismarkaðinn og veita stóru olíurisunum aðhald í samkeppninni. Nú er komið að því að bjóða Akureyringum og nærsveitarmönnum  þennan valkost, þ.e ódýrasta eldsneytisverðið og engin afsláttarkjör,“ segir Rakel Björg Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Atlantsolíu.

„Í kjölfar verðlækkunarinnar í Kaplakrika og á Sprengisandi hefur komið ákall um sambærileg verð frá viðskiptavinum okkar norðan heiða og við erum að bregðast við því með þessum hætti. Nú er hægt að ferðast á ódýrasta eldsneytinu okkar landshluta á milli.“

Viðskiptavinir Atlantsolíu fá áfram afslátt af eldsneyti með dælulykli á öllum öðrum stöðvum Atlantsolíu en í Kaplakrika, á Sprengisandi og Baldursnesi munu allir fá sama lága eldsneytisverðið, án afsláttar.

Atlantsolía rekur 25 sjálfsafgreiðslustöðvar, átján á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og sjö á landsbyggðinni.

Þessi færsla er auglýsing. Smelltu hér til að lesa nánar um auglýsingar og auglýsingatilboð á Kaffið.is.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó